Aha.
Ákvað bara svona í gríninu að henda inn smá svona bloggfærslu. 
Það er svo mikið að gera í lífinu að ég varla fer í tölvu nema til að fiffa síðuna hjá Elís Erni eða til að hanga á mömmuspjallinu mínu.
Sem víkur að því að ég kíkti á svona barnlausan mömmuhitting með skvísunum á laugardagskvöldið. Ein í hópnum bauð okkur heim í kokteila og fínerí og það var svaka stuð.
Ég er svo gömul að ég fór svo bara heim um 1 leytið á meðan sumar þeirra jömmuðu fram eftir nóttu.
Svo erum ég og Elís að fara að hitta þær á morgun heima hjá einni dömunni. Við erum sko 20 sem ætlum að mæta með börnin okkar svo þetta verður eitthvað skondið.
Enda ætlum við að rembast við það í leiðinni að baka nokkrar pítsur oní okkur allar.
Gaman að sjá hvernig fer. 
Eigum við nokkuð að fara útí agaleysið mitt? Jújú...byrjum.
Ég er ekki enn hætt að reykja...ég er að mana mig í það hægt og bítandi en jii hvað það er erfitt að ætla að hætta. Pældí fíkninni! 
Ég ætlaði að byrja að æfa eitthvað í október...það eru reyndar bara 5 kg eftir í kjörþyngdina mína því ég er ein af þessum heppnu sem þyngdist varla á meðgöngu eða allt fór eftir að ég átti en ég verð að stæla mig aðeins því er ég að pæla í Fit Pilates, Boot Camp, bara eitthvað, verða fitt og sexy en ég er ekki enn byrjuð...hmm.
Langar líka pínu í fótbolta þó ég fíli ekki fótbolta en eitthvað laðar mig að honum. Ætli það sé ekki það að hlaupa um og sparka í tuðru sem heilli?
Elís Örn er orðinn rúmlega 3 mánaða og ég held að gaurinn sé að byrja að taka tennur.
Ég var að vonast til þess að hann myndi svona aðeins bíða með það.
Svo er hann endalaust duglegur með allt, grípur í dót og setur það uppí sig, spjallar þvílíkt mikið og brosir og hlær, hann er bara algert æði!
Móðurástin alveg að gera sig hérna. Híhíhíhíhí. 
Jæja, ég veit bara ekki bofs hvað ég á að segja...nenni sko ekki að skrifa um peningamál eða stjórnmál. Bara burt með þessa ríkisstjórn, leyfa okkur að kjósa og lækka launin hjá þessu liði. Já liði þetta er ekkert annað en lið.
Það getur svo enginn sagt mér að þessir menn, (Geir o.fl.) sem segja okkur að þjóðin verði að standa saman og hjálpast að, að þeir eigi eftir að láta fátæka eða fólk í fjárhagskröggum fá hluta af laununum sínum, eða að þeir eigi eftir að sætta sig við einhverja eðlilega launalækkun. Glætan spætan, eins og maður sagði þegar maður var kiddo. Nenni ekki að ræða þetta meir.
Ég er að fara í gegnum fataskápinn minn og gefa fötin til mæðrastyrksnefndar og einnig fötin sem Elís passar ekki í lengur. Ég dauðvorkenni fólkinu sem er með buxurnar á hælunum og skrimtir út mánuðinn,, og fullt af þessum fólki eru einstæðar mæður. Ég gæti verið þarna í röð að bíða eftir mat og fötum. Ég vona að það komi aldrei til þess en ég vil samt að það sé til fólk sem hugsi um þá sem minna mega sín.
Ég á nefnilega ekki pening til að hjálpa öðrum þar sem fæðingarorlofið rétt dugar mér meðan ég bý heima, ef ég færi að leigja þá ætti ég ekki nóg fyrir bleyjum og mat út mánuðinn.
Jess, gleitað.
Jæja, nóg komið, gamla er að fara að sofa þar sem lilli er sofnaður...öss ég fæ alveg 9 tíma svefn.
Eins og ég segi, fullkominn sonur!
Greinilega verið vandað til verks...
See ya.